ZO-ON STORMUR
Færslan er í boði Zo-On.
Við parið fengum skemmtilega fyrirspurn um daginn, en Zo-On óskaði eftir að fá Heiðar til að velja sér jakka frá merkinu. Jakkinn Stormur varð fyrir valinu en við völdum í sameiningu þennan skemmtilega lit sem heitir ‘Mustard’. Jakkinn er þunnur og léttur, en efnið hefur vax-húð svo hann hrindir frá sér vatni og ver fyrir vindum. Fullkominn jakki fyrir sumarið og haustið þar sem hann er ekki of þykkur. Heiðari finnst jakkinn einstaklega léttur og þægilegur, og hentar vel til daglegra nota sem og í útivist.
Jakkinn fæst einnig í dökkbláu og grænu, en við erum bæði ótrúlega skotin í þessum gulbrúna lit. Hann sker sig úr og er ótrúlega flottur við gallabuxur og sneakers. Þessi verður tilvalin fyrir útilegur og útihátíðir sumarsins!
Þú færð jakkann HÉR og í verslunum Zo-On, en hann kostar nú 20.993kr.