Heima hjá mér: í snyrtiherberginu

Jæja þá er komið að því að deila með ykkur myndum af besta herberginu í húsinu að mínu mati – hinu langþráða, drauma-snyrtiherberginu mínu. Snyrtiherbergið er nokkurnveginn framlenging af snyrtiaðstöðunni minni eins og hún var HÉR áður en ég flutti, þó að eitthvað hafi að sjálfsögðu bæst við. Inní gömlu færslunni finnið þið lista yfir flesta hlutina og hvar þeir fást, en ef þið eruð með spurningar um fleiri hluti er ykkur að sjálfsögðu velkomið að spyrja. Það sem ég á eftir að gera til að fullkomna herbergið, er að finna fallegar myndir til að prýða veggina, það kemur vonandi fljótlega. Annars ætla ég núna að láta myndirnar um að tala í þessari færslu 🙂
xxx
Færslan er ekki kostuð.
Rosalega flott aðstaðan hjá þér! Er forvitin að vita hvaða efni þetta er í vösunum sem þú stingur Real Techniques burstunum í? 🙂
LikeLike
Takk fyrir kærlega! ❤ en þetta er fíngerður skrautsandur sem ég fékk í ikea 🙂
LikeLike